Skrifa nýja bloggfærslu...Bríet Kristý Gunnarsdóttir

Já, ætli bloggið fari ekki að detta í gang svona þegar fer að líða á haustið. Maður sest á skólabekk aftur, sem mun eflaust kalla framm fleiri internetstundir en venjulega, svona í "leiðilegu" tímunum. Ætti nú að geta hent inn smá news í vetur!!

En það er nú ýmislegt að frétta síðan ég bloggaði síðast!
Fyrst og fremst er maður nú auðvitað orðin löggild flugfreyja. Útskrifaðist frá flugakademíu Keilis í apríl. Það var algjör snilldarvetur og ég kynntist helling af frábæru fólki. Kynntist náttúrulega Guðrúnu sambýliskonu og Njalla, verðandi sambýlismanni hehe ;)
Í sumar er ég búin að búa í Keflavík og vinna uppí Leifsstöð hjá IGS... en það er fyrirtækið sem sér um allt svona ground service á vellinum. Búið að vera svaka fínt sumar þar. Flyt úr Keflavík núna í lok þessarar viku en við Njalli erum að fara flytja í Hafnarfjörðinn, á Vellina. Það verður ekkert smáááá gott að komast frá keflavík, eins gott og það er búið að vera þá er það orðið pínkulítið þreytt :) Ég er nú samt að öllum líkindum komin með vinnu í KEF í vetur og er svona að velta því fyrir mér að halda henni þar sem keyrslan þangað heiman frá mér er alveg jafn löng og ef ekki betri heldur en niðurá Wilsons í vesturbænum.

Þetta sumar er búið að vera fínt,  búin að gera helling af ævintýrum með Guðrúnu minni hehe, fara á Akureyri, Egilsstaði, tvö ættarmót, útlegur, fór á Bræðsluna á Borgafirði Eystri núna síðastl. helgi og fl.. Njalli er reyndar búin að búa á Egilsstöðum en það er nú loksins á enda.

As we speak er ég að hanga á Egilsstöðum. Njáll er í vinnunni og ég hef EKKERT að gera. Svaf þó út og vann upp svefninn sem ég svaf ekki um helgina á Borgafirði.

Er eignlega bara svolítið spennt að fara að flyjta ti Hafnarfjarðar og byrja í skóla. Fyrir þá sem ekki vita er ég að fara í FB og klára stúdentinn þar sem ég ætti að geta haskað því af á tveimur önnum, en með miklum skóla þá og það verður eflaust mjög strembið, en það verður gott að klára þetta. Ætti nú að vera búin með þetta en við Diddú mín fórum auðvitað á vit ævintýranna til New York og það kallaði jú á smá skóla-breik og vinnutörn áður en sú snilldarferð var framkvæmd. En já, FB it is, í Breiðholti, Njáll útskrifaðist einmitt þaðan í Maí sem rafvirkji, reyndar líka búin í ME...svaka duglegur ;)

En jæja ég ætla að fara horfa á Grey's þáttin sem er búin að vera endalaust lengi að screenast á netinu og fara svo að horfa á Njál reyna að geta eitthvað í fótbolta :)
Svo eru það bara flutningar á miðvikudaginn - get ekki beðððððððððið.

Knús á ykkur og vonandi verður ekki langt þangað til næst!!



nýtt ár - betra bloggBríet Kristý Gunnarsdóttir

djók... Nánar

And I said James Brolin...are you sure?Bríet Kristý Gunnarsdóttir

haha!
dont you just love friends
ég geri það amk:)... Nánar

Uppgjöf, ósigur & tapBríet Kristý Gunnarsdóttir

Komin tími á það sem fer að kallast hitt skiptið í mánuðinum sem ég blogga. Af mér er bara allt ágætt að frétta. Mér líður akkúratt núna eins og höfuðið á mér sé gjörsamlega að springa, því ég er búin að ætla að blogga í SVO MARGA daga, því á hverjum einasta degi finnst mér ég hafa frá svo mörgu að segja... Ég ætla amk að koma með e-ð af því sem ég man -

* bætti við smá neðst:)... Nánar

Sereously...Bríet Kristý Gunnarsdóttir

Það var einu sinni maður á veitingastað að borða voðalega fínan mat... nema kartaflan sem hann fékk með matnum, hún var ekkert voðalega góð. Svo hann kvartaði í þjóninn, sem tók kartöfluna afsíðis og sagði "vond kartafla, vooooond kartafla!!"















Gekk þjóninn til viðskiptavinarins og sagði "Láttu mig vita ef hún verður til leiðinda aftur"































hmmm...hahahaha ;)















p.s. blogg neðar... Nánar

Stelpur!!! Svona er svo eyrnaslapi!!!Bríet Kristý Gunnarsdóttir

hvað er þetta?

það er eitthvað nýtt look hérna og ég kann ekkert.



Útdráttur stendur - og hva, sjénsinn að ég sé að fara gera útdrátt um bloggið mitt, er þetta blogg bara orðið eitthvað djöfuls verkefni haha.



Jæja - í dag mun ég fjalla um heimsmálin og djammið um helgina.



(uuu..kjánalegt, voða formal e-h)... Nánar

fjármálaeftirlit landsins gjörsamlega að bregðast okkur! Bríet Kristý Gunnarsdóttir

nei meina kreppa! Þessi kreppa er algjört CRAP!!!

haha
ok, þetta var ekki fyndið.
gleymum'essu bara

Ég veit ekki með ykkur en yfirleitt er ég ekki beint spennt yfir alþingi, og hugsa bara æji það er bara verið að tala um eitthvað leiðilegt sem skiptir engan máli. Vó, annað en í dag, eða síðastl daga... Jéremías. Ég er alveg föst við sjónkann, visi.is og mbl.is. Þetta ástand er náttúrlega bara ólýsanlegt. Enda helld ég að það hafi ekkert verið tilviljun að það var TROÐIÐ í bankanum þegar ég fór þangað í gær. En maður er að sjálfsögðu með viðskipti (svona líka gríðarleg) í lang fallegasta og besta bankanum sem er lang stöðugastur í gegnum allt þetta. Ég þarf eflaust ekki að nefna hann á nafn.

Ég er nú að horfa á hann Geir muldra e-h á blaðursmannafundi ríkistjórnarinnar sem er beint á stöð 2, (sem ég er btw ekki ennþá komin með en borgaði fyrir í ágúst, verið að svindla á litlu stelpunni)

Fer þetta vesen ekki að taka enda? Maður hélt e-h hluta vegna að þetta myndi aldrei ganga svona langt. Ég er bara farin að hafa áhyggjur..
Þeir tala um að eftir helgi verði öll bankaviðskipti milli landa komin í rétt horf, sjénsinn, þeir hafa nú sagt ýmislegt undanfarið og ekki staðið við sjitt afþví. Alltaf með svaka yfirlýsingar,  og svo að það séu komnar lausnir, sem er svo aldrei sagt frá.

Stjórn bankans og stjórn glitnis farið til fjandans, jeeyy ekki hefði ég viljað vera stjórnarmaður þar.

Stundum er bara ansi ágætt að hafa ekki átt margar mills til að fjárfesta og kaupa dýra bíla, vinna sem eitthver háttsettur bankastarfsmaður, stundum, eða eins og  í dag, er einstaklega hentugt að vera bara fátækur námsmaður, sem skuldar bankanum bara í stað þess að eiga sparifé þar (ekki það að það sé ekki tryggt, svo er amk sagt) já og ég tala nú ekki um það að vinna á pizzustað, því raunin virðist vera sú að þrátt fyrir kreppu og peningaskort er ákveðin hluti þjoðarinnar bara skuggaklega gráðugur og feitur. haha

Upphaflega hafði ég þo mest gaman af alþingi útaf honum björgvin, viðskiptaráðherranum okkar, mér fannst hann eitthvað foxy, ég er ekki frá því að það sé breytt, ég nefnilega googlaði hann og hann er ekkert spés.

Nú já, talandi um eitthvað annað en peninga, banka, björgvin og fátækt.

Þá er lífið á vellinum bara þokkalegt. Fyrir utan það að frá því í gærkvöld hefur ekki verið heitt vatn, sem þýðir nú eitt, eða reyndar tvennt, nóg uppvask og enginn sturta. Ekki mjög nice!!

Agnes mín, Thelma, Diddú & Rakel eru allar að koma um helgina og ég get ekki beðið!! Agnes og Rakel koma strax til min annað kvöld og það verður algjör snilld :)
Svo að helgin á eftir að verða priceless eins og alltaf þegar þessar svona líka ágætu vinkonur eiga í þátt...

Haha, sú saga gekk á mánudagskvöldið að bensínið myndi hækka um miðnætti, sumir héldu 10 kr, aðrir 50. Guðrún Sif dróg mig niðrí Keflavík að taka bensín og ég deildi því þessu með fleirum og sagði þeim að taka bensín. Gerði merir að segja veðmál, sem ég tapaði reyndar. En bensínið lækkaði nefnilega um 12 kr daginn eftir hahahahaha!!!! Æjæj, en þetta munaði Guðrúnu samt bara um 1ltr svo það er nú ekkert svo alvarlegt!!!

svo er bara að vona að rússarnir verði menn með mönnum og láni okkur fyrir þessu..

já og geir átti sko samtal við kollega sína á norðurlöndunum í gær, gott hjá þér elskan. Svo talar hann um þetta sem vinaþjóðir! Ekki fannst mér það í júróvisjon...

haha

love and money,

sólheimaglott!

annars finnst mér reyndar helgi seljan fréttamaður aaansi sætur.

$$$$...Bríet Kristý Gunnarsdóttir

Smá brandari um efnahagsmálin okkar....



hahaahahaaaaaaaahaaaaha

það væri líka helv...nice ef þetta væri brandari!!!
Gengi gjaldmiðla

BandaríkjadalurUSD111,29 kr.
EvraEUR154,82 kr.
SterlingspundGBP196,4 kr.
KanadadalurCAD104,21 kr.
Dönsk krónaDKK20,755 kr.

eruði ekki að spauga eða? úff.. Þegar ég var úti var ég að drepast úr nísku því dollarinn var sko 70 kr!!! (kannski ekkert að drepast úr nísku, en ég hugsaði!!) haha

gengur vel í skólanum, snjór í dag í keflavík þegar ég vaknaði! Æj, enþað er svo sem bara kósý líka. Var í prófi í gær og í dag og það gekk glimrandi.
Kaffihús í kvöld með verðandi co-workers (bring your milk girls)  og svo bara rise and shine kl 9 í fyrramálið í skólann...
 Vinna um helgina og svo eru Agnes og Rakel að koma þarnæstu helgi og auðvitað þýðir það t.j.ú.t.t. en ekki hvað

peace out
(haha)


monday lovely mondayBríet Kristý Gunnarsdóttir

Var ég ekki eittvað að tala um það um daginn að það væri orðið svo stutt á milli blogga hjá mér? helld að ég ætti að draga það e-h til baka!

Þið verðið að afsaka ef það vantar stafi inní bloggið hjá mér, það vill svo skemmtilega til að litli sæti lappinn minn er retarded. Það vantar H takkann og það er einstaklega erfitt að skrifa H. Hann er eitthvað skakkur og ég næ ekki að laga hann. PAbbi, sendu viðgerðarmann í hið fyrst. djók.

Síðasta vika var svona lika rosalega fín. Við Arnmundur og Guðmundur vorum rosalega duglegar í ræktinni og það var gott....djöful líður manni alltaf vel eftir á! Fékkk líka úr 1sta prófinu og það var ekkert annað en 10, svo það er bara eintóm hamingja.  (ég var pottþétt búin að segja öllum það samt....haha)

Thelma mín og Diddú komu um helgina. Anna Karen reyndar líka en eg sá hana ekkert :(  Á föstudaginn átti ég von á þeim í heimsókn svo ég skrúbbaði pleisið fyrir Telmu snobbhahus, veit nú að Diddú myndi ekki kippa sér upp við draslið, enda engu skárri sjálf, hhahahha, við bjuggum nú líka saman svo við erum hvor annari vanar. EN þær voru leiðilegar og komu ekki! Svo ég djammaði bara með skemmtilegu vinkonum mínum úr skólanum hahah. Það var auðvitað hittingur hjá mér og við fórum svo í bæinn. Sem var líka svona afspyrnu leiðilegt. Ekkert nema útlendingar, og það meir að segja fáir! Enda fékk ég að heyra það um helgina að djammið á föstudögum í keflavík væri eins og djammið á sauðarkrók á mánudögum.......svo það er nú frekar lélegt. Geri ég fastelag ráð fyrir, ekki mikið að tjútta á Króknum.

Svaf frammeftir á laugardaginn og fékk far með TÖNJU.. (segi alltaf tanja og það pirrar hana mjög)  Fór til Hörpu þar sem við tvær + Diddú steinsofnuðum allar uppí rúmi! Sváfum til sjö haha. Fórum svo á FRIDAYS að éta, allt fyrir diddú sem saknaði þessi, við átum náttlega þar svona 4x í viku í new york. En vá það var gott, as usual. Fórum svo til Hörpu og Arnmundur minn kom ásamt fleirum og það var smá tjútt, eyrún kærasta villa bróðirs kom líka með okkur og það var gegggjað gaman:) Fórum á Sólon en enduðum Apótekinu, enda klikkar sá staður helld ég mjög seint...og heldur betur ekki á laugardaginnn.Svalur  Tja nema kannski fyrir utan það eitt að dj-inn átti ekki uppáhalds lagið mitt og ég fór í fýlu. Sagði honum vinsamlegast að REDDA ÞVÍ. (frekjan lét ljos sitt skína)
Ég reyndar heyrði þá allra lélegustu piikup línu sem ég hef heyrt "Hæ - ég er verkfræðingur"
OK, first of all, þá er þetta glatað, second of all, þa var gaurinn ekki sætur, og í þriðja lagi, þá heilla verkfræðingar mig ekkert, þeir eru örugglega dead boring!

Annars er ég alltaf að komast meira og meira afþvi hvað mér líður vel hérna í keflavík, eða á reykjavíkursvæðinu, eða þið vitið, bara fyrir sunnan. Mér finnst þetta voðalega kósý og fínt. Núna t.d. sit ég heima ein uppi sofa, með kerti og það er diiiiiimt úti. Reyndar væri ég til í eitt stk grjón í uppvaskið amk, það er alveg óþolandi, það sem myndi líka fullkomna þetta allt saman væri að hafa fjölskylduna hérna en það er ekki allt hægt
ég segi þetta gott bíli!  ætla að fara að læra því það eru tvö próf í vikunni og svo ætla ég að horfa á greys í smá og ef ég þekki mig rét, að fá mér að borða, þangað til næst, veri guð með ykkur Öskrandi

p.s. ég er búin að uppgvöta fyrsta gallanum já nágrannanum (sko ekki Guðrúnu heldur lúðanum sem býr við hliðin á mér og veit vonandi ekki um bloggið mitt, en jú, áhugamálið þar virðist vera eitthver djöfuls saxafónn eða fiðla, álika mikill hávaði í þessu drasli...úff) gæti samt verð að hefna sín, ég er nú alltaf með ...."smá" tónlist.


Alltaf eðlileg...alltaf.

arpa &Arnrún mín

Thelma og ég....Harpa mín var að klippa mig aftur með topp... er þaggi bara fínt?

conflict management...Bríet Kristý Gunnarsdóttir

Jæja... þá maður mættur í skólann. Er eiginlega "mánudagur" hér hjá okkur þar sem kennarinn okkar var veikur í gær, og var ÞVÍ MIÐUR að kenna okkur allan daginn, mikið svekkelsi þar á fer. Enda var sofið út í gærmorgun í tilefni þess, og skellt sér á KFC í hádg... Very nice. Mæli með þarna þessu nýja, "meltz". I like...very nice.

Helgin var nú ósköp viðburðalítil, ég var að vinna á Wilsons, jeyjj, fyrsta vinnuhelgin búin. Voðalega fínt. Var að vinna 16:30-23 á föstudaginn, 12-23 á laug og svo 112 -22:30 á sunnudaginn. Svo maður vann nú alveg nokkra tíma um helgina. Ég gisti hjá Ingu frænku og það var voðalega fínt, við tókum þessa drepleiðilegu mynd á laugardaginn sem eg sofnaði snemma yfir, sem var eiginlega voða gott.

Næsta helgi, fusion festival í heims rassi, (world class hah) Við Thelma erum að velta því fyrir okkur að skella okkur aðeins, amk í tímann hjá Paul Oscars, þar sem hann mun spila tónlist og nokkrir kennarar verða með pallatíma. Jeyjjjjjj... Efast nú ekki um það að við munum halda áfram að dansa þegar líður á kvöldið Svalur Erum nú andssskoti þekktar fyrir að hrissta rassssinn on the floor baby.

Við Arnrún erum búnar að vera voðalega duglegar að mæta í ræktina, fjárfestum í 6 mánaða korti í LIFESTYLE FITNESS CENTER, í Keflavík. Það er svo sem ágætis búlla, frekar sveitt og þungt loft þar...en ég meina, það sleppur til. Við fórum t.d. í gær, og svo í sund. Svo heim og minns bauð Arnrún í mat. Maður hefði nú haldið að matarboð væri nú eitthvað fancy, nei sææll  -kjötfars á brauð og bakaðar baunir!! hehehehe... og það var alveg ógeðslega gott! Svo lágum við uppí sófa að horfa á Grey's og Guðrún kom og var með okkur. Sofi sofi og vaknaði 8.30 í morgun!

Djöfull er samt glatað að eiga lítinn pening! Helld ég hafi aldrei fundið jafn mikið fyrir því og nú. Það er eitt að geta ekki veslað sér föt og drasl sem manni langar í, ég er nú alveg laus við að þurfa það enda hlaðin drasli. Annað sem er VERRA, er það að eiga ekki einu sinni pening til að uuu t..d lita á sér hárið! Tja, ætli ég sé ekki svona "ljós-dökkhærð" núna. Augabrúnirnar á mér, ég er að verða loðnari en Kristófer frændi! Svo er púðrið mitt búið þannig að bara bólur, everyone is welcome to see. Nú já, talandi um maskarann minn sem orðinn ein klessa. Það er dýrt að vera falleg kona, haha, og ég á svo sannarlega ekki efni á því. Hvað varð um það að vera bara náttúrulega sæt? tsssssssss... Það væri óskandi núna!! Þannig að ef eitthver er á leið til USA þá er ég með shopping list fyrir ÞIG og þú ferð í Sephora og kaupir snyrtidót fyrir mig á svoo miklu lærra verði. LET ME KNOW!!!!!!!!!!

Svo að...that's how my life on the base is these days... það er skítsæmó.


ég er kannski ekki alveg jafn ljót og nichole ritchie ómáluð..sææll!


 

Prófíll

  • Nafn: Bríet Kristý Gunnarsdóttir
  • Netfang: brietkristy@hotmail.com
  • Staður: Hafnarfjörður
  • Heimilisfang: Kirkjuvellir 9 (tja innan viku)
  • Atvinna: Wilsons og íþróttakennsla hjá Reykjanesbæ
  • Hjúskaparstaða: taken

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvað ertu?

Leit